Til leigu 3 herbergja íbúð Gran Alacant, Spáni.

Einnig til leigu hjá okkur 4 herbergja einbýlishús með einkasundlaug : www.spanarvilla.com

Skemmtileg íbúð til leigu á góðum stað fyrir fjölskyldur eða alla þá sem vilja þægilegt, afslappað sumarfrí með allri helstu þjónustu í stuttu göngufæri.

Í aðeins 4-5 min akstursfjarlægð er hin frábæra Carabassi strönd sem er ein af stæðstu og bestu ströndunum á Spáni . Ströndin og hennar nágrenni er friðað og þar er nóg pláss fyrir alla, hún er hreinleg og auðvelt að komast á hana. Hverfis "lestin" á Gran Alacant gengur reglulega um bæinn og fer meðal annars niður á strönd.

Gran  Alacant  hverfið er staðsett í 8 min keyrslu frá Alicante flugvellinum. 15 min keyrsla er til líflegu strandborgarinnar Alicante þangað gengur einnig reglulega strætó -og leigubílar. 

Umboðsaðili okkar á Spáni tekur á móti ykkur við íbúðina og svara ykkar spurningum ef einhverjar eru.

Sameiginleg sundlaug alveg við hliðina á íbúðinni

Frábær sólarverönd á þaki íbúðarinnar fyrir sólbaðið og grillið

 Gott útsýni frá íbúðinni yfir sundlaugina

Vel staðsett,þæginleg þriggja herbergja íbúð.